Spurningar.is

Um okkur

Spurningar.is er glænýr spurningaleikur sem snýr að því að taka tengja sama spurningar og svör á skemmtilegan máta. Því fleiri tengingar sem þú gerir því fleiri stig færðu og því fleiri sem taka þátt, því skemmtilegri verður leikurinn. Mismunandi notendur skapa fjölbreyttari spurningar og því fjölbreyttari verður þekkingin þín. Glæsilegir vinningar eru í boði sem verða enn glæsilegri eftir því sem þú kemst lengra í leiknum. Prófaðu leikinn í dag á í gegnum Android og iOS.

Hlutverk leiksins er að styðja við íslensku í upplýsingatækni þjóðfélaginu. Með þinni þátttöku safnast spurningar og svör sem nýtast í máltækniverkefnum framtíðar til þess að gera tölvum og snjallsímum kleift að svara þínum spurningum á íslensku. Vefurinn og söfnunin er rannsóknarverkefni á vegum Mál- og raddtæknistofu Háskólans í Reykjavík.

Markmiðið er að búa til 100 þúsund spurningar og svör. Þegar því verður náð munu gögnin gera fólki mögulegt að tjá sig enn betur á íslensku í gegnum tölvur og snjalltæki. Hægt yrði að nýta gögnin meðal annars til að skapa stafrænan aðstoðarmann fyrir íslensku.

Hugmyndin er sú að þegar tekist hefur að safna 100 þúsund spurningum, þá er hægt að kenna tölvum og snjallsímum að svara hvaða spurningu sem er á íslensku. Þar getur þú spurt tækið spurningar upphátt og fengið lesin svör til baka. Við erum semsagt að leggja grunninn að því að smíða alvöru vélmenni sem getur lært að svara þínum spurningum! :)

Því fleiri sem taka þátt, því skemmtilegri verður leikurinn og um leið safnast í fjölbreyttar spurningar og svör fyrir vélmennið okkar. Glæsilegir vinningar eru í boði sem verða enn glæsilegri eftir því sem þú kemst lengra í leiknum. Hversu spennandi hljómar það?!

Taktu þátt